
Ólafsvík með Snæfellsjökul í suðri.
Þessari síðu er ætlað að vera söguleg heimild, til upprifjunar fyrir þá leitarmenn sem þátt tóku í þessari viðamiklu leit, og til fróðleiks þeim sem ekki voru þar. Ekki er ætlunin að rýra hlut neins sem að leitinni kom eða verða á annan hátt nokkrum manni til óþurftar eða óþæginda. Munum að reynslan er besti kennarinn og til að sem flestir geti lært þarf að miðla reynslunni!
Sérstakar þakkir fá Ingi Hans Jónsson, Baldur Gíslason og Sævar Hansson en þeir eiga heiðurinn að mest öllu efni sem fram kemur í þessari umfjöllun. Ég fékk það bara að láni til að setja það hér. Baldur og Ingi sátu í svæðisstjórn þegar þessi aðgerð átti sér stað og sitja enn. Sævar á hluta myndanna og var sá sem á endanum fann hinn týnda, fimm árum eftir að hann týndist.
Ein þekktasta leit seinni tíma á Íslandi
Þann 1. júní 1993 auglýsti Lögreglan í Kópavogi eftir manni, Charles Agli Hirt. Talið var að hann hefði tekið rútu til Ólafsvíkur og stefnt til fjalla þaðan. Maðurinn var ekki vanur fjallamaður og illa búinn. Leitin átti eftir að verða löng og umfangsmikil og vakti nokkuð mikið umtal á sínum tíma. Hér verður fjallað um leitina og framgang hennar og hvaða lærdóm má draga af henni. Leitin bar ekki árangur á sínum tíma, þrátt fyrir að vera umfangsmikil, en fimm árum seinna gekk ferðamaður fram á lík af manni á stað sem hafði verið rétt utan leitarsvæðisins á sínum tíma. Nánari rannsókn leiddi í ljós að líkið var af hinum týnda.
Dagur 1
Að kvöldi dags, 1.júní 1993, lýsti Lögreglan í Kópavogi eftir manni. Lögreglan telur að maðurinn kynni að hafa tekið rútu á Snæfellsnes. Vitni sáu til hans kaupa miða á umferðarmiðstöðinni. Þá átti hann ekki pening fyrir fari nema í utanverða Staðarsveit. Rannsóknarvinna leiðir í ljós að þrátt fyrir það fékk maðurinn að fara alla leið til Ólafsvíkur. Í Ólafsvík stoppar rútan fyrir framan sjoppu og afgreiðslustúlkan þar kveðst hafa séð hinn týnda koma með rútunni kl.14.00 um daginn. Hann spurði til vegar á jökulinn og hún lét hann hafa bækling sem sýndi veginn upp að jökli. Fremur þungskýjað var þennan dag og ekkert sást til jökulsins.
Auglýst í fjölmiðlum eftir hinum týnda. Hjón tilkynntu að maður sem passar við lýsinguna hefði verið í Krókabrekkum fyrir ofan Ólafsvík og spurt son þeirra hvar Snæfellsjökull væri og benti hann í átt að jöklinum.
Útkallið
Kl. 22.30 hefur lögreglan samband við björgunarsveitina í Ólafsvík og biður um að kallaðir verði út leitarflokkar og leit undirbúin.
Kl: 23.00 eru 20 björgunarsveitarmenn tilbúnir til leitar og von á 30 mönnum til viðbótar um miðnætti.
Einnig hefur lögreglan í Kópavogi kallað út þyrlu gæslunnar og kom hún á flugvöllinn í Rifi um kl: 01.30 þann 2 .6.93. og hélt skömmu síðar til leitar, hitamyndavél var meðferðis í þyrlunni.
Sporhundur var kallaður út og kemur hann með morgninum.
Um miðnætti eru sem sé um 50 manns komnir til leitar og þyrla og hundur væntanleg
Lýsing á hinum týnda:
Hinnn týndi heitir Charles Egill Hirt og er 29 ára gamall, hávaxin frekar dökkur á hörund með svart hrokkið hár. Þegar síðast sást til hans var hann klæddur í hvítan frakka og ljósar buxur, í strigaskóm og í grárri peysu innanundir frakkanum. Sá týndi hafði verið í sambúð en slitnað hafði upp úr, og var fyrrverandi sambýliskona hans farin austur á land með barn þeirra.
Dagur 2
Þyrla Landhelgisgæslunnar kom á flugvöllinn á Rifi um kl: 01.30 þann 2 .6.93. og hélt skömmu síðar til leitar. Um 50 leitarmenn leituðu um nóttina, án árangurs.
Um morguninn kl: 07.30 bættist sporhundur við í leitina. Sporhundurinn fór sem leið lá upp Grundarbraut, upp krókabrekkur og á svæðið norðan við Hróa, hundamaður taldi hundinn vera á slóð.
Kl. 08.00 bættust 40 leitarmenn í hópinn.
Kl. 14.25 finna Leitarmenn spor eftir strigaskó í snjó í norðurhlíðum Hróa
Kl. 15.00 bættust við 32 leitarmenn.
Vitni kom fram sem taldi sig hafa séð mann koma ofan af fjalli kl: 23.00 kvöldið áður og var maðurinn klæddur hvítum frakka. Kom hann skáhalt niður Krókabrekkur.
Kl. 15.00 Sporhundur leiddur á nýtt leitarsvæði inni í Dal, (ofan byggðar í Ólafsvík) Hundurinn leitar niður Dal með Hvalsá. Á svæðinu milli þjóðvegar 54 og gamla vegar telur hundamaður sig örugglega vera á slóð, sem virðist enda þar, kl. 16.20 .
Kl: 19.00 eru víðavangshundar sendir á leitarsvæðið við Hróa. Þeir stefna út Hólsdal í átt að Hellissandi fyrir sunnan Enni.
Kl. 21.30 bætast 40 leitarmenn á svæðið .
Kl. 20.40 Sjáandi hefur samband og lýsir verustað hins týnda þannig að þaðan sé mjög víðsýnt og sjáist á tvo flugvelli.
Í lok dagsins eru um 140 manns við leit á svæðinu.
Atburðirnir áttu sér stað snemma sumars, þannig að enn voru skaflar og leysingar til fjalla. Ekki er ólíklegt að leysingarvatn hafi leikið um hinn týnda þar sem hann lá og það vatn berst í Fossá. Fossá er síðan virkjuð í Rjúkandavirkjun. Afrennsli virkjunarinnar rennur síðan í Hvalá, en þar varð sporhundurinn var við lykt. Þetta kann að virðast langsótt skýring en til eru fleiri dæmi um að lykt hafi borist á þennan hátt langar leiðir með vatni.
Dagur 3
Þennan þriðja dag leitarinnar var leitað meira án árangurs. Svæðið vestan Hróa var leitað, kafað var í höfninni og undan landi þar sem Hvalsá rennur í sjó fram og farið aftur yfir þau svæði sem talin voru heitust. Vitni fann ökuskírteini hins týnda undir gangstéttarhellu við hús nr: 42 við Grundarbraut í Ólafsvík kl: 21 00, og hafði ökuskírteininu greinilega verið komið fyrir þar því að lyfta þurfti hellunni til að ná því. Við vettvangskönnun komu fram vitni sem báru að þau hefðu séð mann, klæddan líkt hinum týnda, sitja á steini í Tvísteinahlíð og reykja. (Innskot 30.09.07 Skv. nýjum upplýsingum reykti maðurinn ekki og því ólíklegt að hér hafi verið um hann að ræða.)
Dagur 4
Þennan dag, 4. júní, og reyndar þann 5. líka, var leit haldið áfram án nokkurs árangurs. Í lok dags 5. júní var ákveðið að hætta leit, a.m.k. í bili. Þá hafði leit staðið yfir í fimm daga viðstöðulaust, án þess að hinn týndi kæmi í leitirnar.
Dagur 5
Leit heldur áfram án árangurs. Leitarsvæði lítið útvíkkað og aðaláherslan lögð á að leita líkleg svæði enn betur. Í lok dags ákveða leitarstjórnendur að hætta leit, a.m.k þangað til nýjar vísbendingar berast.
Dagur 6
Nokkrum dögum seinna var á ný blásið til leitar. Ekkert fannst sem leitt gat til hins týnda.
Dagur 7
Enn var blásið til eftirleitar og enn var leitin árangurslaus. Formlegri leit var nú endanlega hætt, en aðstandendur aðgerðarinnar áttu eftir að halda áfram rannsóknarvinnu allt þar til hinn týndi fannst, fimm árum seinna.
Lík mannsins fannst við stein í vestanverðu Tindfelli, en það var rétt utan leitarsvæðisins. Leitin var að vori þannig að líklegt er að leysingarvatn hafi runnið um líkið þar sem það lá. Það gæti síðan hafa leitt til þess að lyktin af hinum týnda barst alla leið niður í Hvalá.| Leitarstjórnendur hafa sína kenningu um það hvað gerðist eins og lýst er í textanum.
Rúmum 5 árum seinna
Þann 17. 6. 1998. Kl: 00.05 kemur maður á lögreglustöðina í Ólafsvík og tilkynnir að hann hafi ásamt þremur konum gengið fram á lík af manni í vestanverðu Tindfelli. Tilkynnandi hafði verið einn af stjórnendum leitarinnar fimm árum fyrr og taldi líkið vera af hinum týnda, eftir fötunum að dæma. Bauðst hann til að fara með lögreglunni á staðinn. Síðar var staðfest með rannsóknum að líkið var af manninum sem hafði horfið þann 1. júní árið 1993 og fjallað hefur verið um í þessari grein. Maðurinn fannst rétt utan þess svæðis sem leitað hafði verið á. (innskot: Seinna kom í ljós að svæðið hafði verið skipulagt sem leitarsvæði en leit var aldrei framkvæmd þar).
Þar með var loks lokið leit sem hafðist meira en fimm árum áður og orðið ein umtalaðasta leit seinni tíma á Íslandi. En hvers vegna fannst hann ekki strax?Þegar leitin var framkvæmd þótti ekki ástæða til að leita þar sem hinn týndi fannst. Þá ákvörðun má eflaust gagnrýna, en höfum í huga að það er alltaf auðvelt að vera vitur eftirá. Margt hefur breyst síðan leit þessi fór fram og meðal þess má nefna að í dag eru línuleitir nánast aflagðar og allir sem þekkja nútíma leitarfræði, vita að 90 manna leitarlínur eru ekki vænlegar til árangurs! En það sem hefði getað haft úrslitaáhrif í þessari leit er nokkuð sem mönnum hugkvæmdist ekki þá, en við vitum í dag: Lykt berst með vatni! Hefði einhverjum dottið það í hug þegar sporhundurinn leitaði ítrekað í Hvalá, þá gæti niðurstaða leitarinnar hafa orðið önnur. En eins og áður segir þá er gott að vera vitur eftirá.
En hvað gerðist? Hvernig komst hinn týndi þangað sem hann fannst? Svörin við þessum spurningu verða vitaskuld aldrei afhjúpuð, enda er sá eini sem kunni þau ekki til frásagnar í dag. Hversvegna fór sporhundurinn fyrst upp að Hróa? Var sporið sem fannst þar eftir hinn týnda? Var hundurinn raunverulega á lykt við Hvalá? Hvers vegna var ökuskirteini hins týnda undir hellu í húsagarði? Kom hinn týndi einhverntíman niður í Ólafsvík eftir að hann fór upp Krókabrekkur? Fór hann einhverntíman upp þar? Þeir sem stóðu að leitinni hafa sett saman kenningu um það hvað kann að hafa gerst.
Kenningin:
Hinn týndi kom til Ólafsvíkur og gekk í átt að Snæfellsjökli. Hann fór upp Krókabrekkur og upp að Hróa. Þar tók hann vinkilbeygju því að skyggni var slæmt til jökuls og hann ekki fær um að meta hversu langt var eftir þangað upp eða hvert hann ætti að fara. Talið er að hann hafi tekið stefnuna til austurs og gengið alla leiðina upp í hlíðar Tindfells, þar sem hann settist niður í hinsta sinn.
(Innskot: Ég á einhversstaðar ljósrit af leitarskipulagi þessarar leitar sem mér barst í hendur nokkru eftir að ég setti þetta upprunalega upp á vefinn. Ég skanna það og kem því hér inn um leið og það kemur í leitirnar)


Hefur þessi síða verið á netinu lengi? Hef aldrei séð þetta áður, hvenær kemur þetta leitarskipulag inná?
er þessi síða nýkomin á netið? hef aldrei séð þetta áður. Hvenær kemur þetta leitarskipulag?
Sæl
Þetta hefur verið nokkuð lengi á netinu já og stóð alltaf og stendur enn til að bæta fleiri leitum í safnið. Hvað leitarskipulagið varðar þá seit ég að ég á það einhversstaðar í gömlum pappírum en hef bara ekki enn átt leið í geymsluna til að grafa eftir því…