Upplýsingar um hegðun týndra eru þýðingarmikið verkfæri fyrir leitarstjórnendur og leitarfólk við framkvæmd leitaraðgerða. Slíkar upplýsingar geta sagt okkur ýmislegt um þá sem hafa týnst í gegnum tíðina og þar af leiðandi gefið okkur hugmyndir um hvað sá sem við leitum í dag eða á morgun er líklegur til að vera. Meðal þeirra upplýsinga sem geta nýst eru hversu langt fer fólk, hvar leitar það skjóls, með hvernig leitaraðferð fannst það, hvernig var ástandið þegar það fannst og svo framvegið. Upplýsingum er skipt í flokka eftir aldri, áhugamálum, andlegu ástandi og ýmsu fleiru. Nýjustu samantektir taka einnig til greina landslag með því að nota svokölluð eco regions til að gera greinarmun á því landslagi sem allir hinir villuráfandi hafa týnst í. Upplýsingar um hegðun týndra má finna víða á netinu og í útgefnum bókum en hér neðar er grófur listi yfir það helsta. Ef þið hafið einhverjar athugasemdir, spurningar eða hugmyndir þá endilega póstið þær hér fyrir neðan.

Hegðun týndra í útlöndum:
Um hegðun týndra (Lost Person Behaviour Characteristics) (SARBC)
Hegðun týndra Ástrala (SARBayes)
Breska rannsóknin (pdf skjal á síðu BMRC)
Á vef Bob Koesters er að finna hluta af hans niðurstöðum (neðst á forsíðunni: SAR Research)

Þörfin á Íslandi fyrir íslenskar upplýsingar er aðkallandi og hefur verið það lengi, þó ekki væri nema til að sjá hverju vel erlendar tölur eiga við íslenskar aðstæður. Það er tilgangur þessarrar síðu að vekja áhuga á þessarri hlið leitar- og björgunarstarfsins, tengja inn á áhugaverða linka um þessi mál og ekki síst að auðvelda fólki og hvetja til þess að það skili inn þeim gögnum sem það býr yfir. Skjalið “Upplýsingar í gagnagrunn um hegðun týndra.“ er word skjal sem auðvelt er að fylla inn í og senda til mín í sigosig (-hjá-) landsbjorg.is

Hérlend gögn
Upplýsingar í gagnagrunn um hegðun týndra. (Eyðublað til útfyllingar í grunninn (word form))

Skildu eftir svar

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s





Follow

Get every new post delivered to your Inbox.