Sarpur fyrir flokkinn Uncategorized

Gleðilegan hversdagsleika!

Lukkan min horfir heilluð i rauðan logann.

Lukkan mín horfir heilluð í rauðan logann.

 

Þá eru jólin búin, við fölskyldan sprengdum þau í burtu fyrr í kvöld ásamt greinilega nokkrum öðrum íbúum stór Kópavogssvæðisins sem áttu afganga frá Gamlárskvöldi. Spennandi ár er framundan, Erla að klára sjúkraþjálfunina í vor, stórar hjólaferðir hérlendis og erlendis á dagskránni, árskort á skíði bíður í veskinu eftir kaldari tíð, stór og spennandi verkefni bíða í vinnunni, langt og gott ferðasumar í sjónmáli og margt annað spennandi og skemmtilegt. Óopinber og óformleg áramótaheit hafa verið strengd inni í sálinni og allt klárt fyrir gott ár framundan.

Last minute panic = Uppskrift að árangri

Motel Pavilion i Palmerston North

Það var komið miðnætti í gær þegar ég átti enn eftir að klára 3 tíma workshop sem ég var með hér á ráðstefnunni í dag. Ég var búinn að breyta helmingnum af því sem ég hafði komið með að heiman á meðan ég var enn í Christchurch. Þá datt mér í hug að kíkja í dagskránna og sjá hvað stæði um mig og minn fyrirlestur. Það sem stóð um mig var allt nokkuð satt og rétt en það sem stóð um efni fyrirlestursins var síðan allt annað en það sem ég hafði undirbúið! Frábært…  Og þar sem ég er maður sem vill ekki valda vonbrigðum (ég sagði vill ekki, ekki þar með sagt að ég geri það aldrei) þá byrjaði ég í morgun að breyta hinum helmingnum sem ég breytti ekki í Christchurch og kláraði það ca 12 mínútum fyrir fyrirlesturinn kl.13.00. Nokkuð góður millitími það! Og svo gekk þetta bara eins og í lygasögu, ca 25-30 þátttakendur og mikill áhugi og ef marka má það sem fólkið sagði, mikil ánægja. Þar með er stressið farið enda bara eftir að halda fyrirlestur fyrir 330 manns á sunnudaginn! Palmerston North er bara nokkuð snyrtilegur staður og ég er með heila 2ggja herbergja stúdíoíbúð á Hotel Pavilion.

Riding sheep trail!

Smá video sem ég setti á Youtube með myndum frá ferð okkar Erlu á Hellisheiði fyrir 2 vikum ca. Fórum veginn meðfram Skarðsmýrarfjalli og inn í Innstadal. Frá Innstadal fórum við göngustíg/kindaslóð fram dalina og í gegnum Þrengslin og svo veginn til baka.

Rammíslenskt veður á fjallabaki

Við fórum í skemmtilega ferð um helgina. Þegar flestir héldu sig heima útaf veðurspánni brunuðum við upp í Lambhaga á föstudagskvöldið og sváfum þar í fínu veðri. Á laugardeginum keyrðum við svo upp að Fossbrekkum en þar var svo mikið rok að fossarnir runnu uppávið og við stöldruðum ekki lengi þar. Í Áfangagili var hinsvegar hin mesta veðurblíða og hægt að sitja úti, lesa og borða osta. Fórum síðan Dyngjuleiðina og upp að Eskihlíðarvatni þar sem við enduðum á að gista eftir að hafa leikið okkur í sandinum í skemmtilegu veðri þar sem gekk á með sól og roki og rigningu. Það jafnast ekkert á við tært loftið þegar sólin brestur á strax eftir hellirigningu.

Hjólað niður Everest!

Við Atli hjóluðum niður eitt og hálft Everest (niður að sjávarmáli) fyrstu tvo dagana sem við vorum í Chamonix í sumar. Ekkert ömurlegt…

Skíða blíða

Það var hrikaleg blíða í Skálafelli um helgina og gaman í barnabrekkunni. Lukka er orðin svaka klár á skíðunum og fílar sig í ræmur. Fórum á laugardag og sunnudag og héldum svo svaka pitsuafmælisveislu fyrir Lukku þegar við komum heim á sunnudeginum. Fimmtán pitsur og risastór Hello Kitty súkkulaðiterta á skíðum. Frábær helgi og nú eru páskarnir að koma með meiri skíðum og skemmtilegheitum. Sjáumst í fjöllunum.
Sk�ðastelpa
Það var hrikalega gaman að skíða í gegnum hliðin í barnabrekkunni. Þeim mun hraðar þeim mun skemmtilegra.

Gleðilegt ár í nýju ljósi!

 Studio

Gleðilegt ár kæru vinir. Mátti til með að setja inn mynd af nýju græjunum. Búið að vera draumur lengi vel að kaupa einföld stúdíóljós og loksins hef ég látið verða að því. Var reyndar ekki einn í fjárfestingunni heldur deili eignarhaldinu með Atla Má. Þetta eru einföld óg ódýr ljós, 2 stk 1500 w flöss, tveir fætur, softbox og regnhlíf ásamt þráðlausum sendi og tilheyrandi snúrum. Fékkst fyrir 35.000 kall í Hans Petersen og ég er bara nokkuð sáttur við gripina, a.m.k. fyrir þennan pening. Þá er bara að moka út úr skrifstofunni sem síðustu misseri hefur breyst í draslageymslu og búa til minnsta stúdíó á Íslandi. Gæti heitið “Stúdíó Smáland” eða “PL Stúdíó” (pínu lítið stúdíó). Nú verður gaman að leika…