Ég er búinn að opna nýja www.sigosig.com. Síðan mín hefur legið niðri í nokkurn tíma síðan léninu var “stolið”. Nú er það mitt aftur og að þessu sinni eingöngu ætlað ljósmyndum úr safni mínu. Áfram verð ég með þessa síðu fyrir texta og hugrenningar, flickr síðuna fyrir fjölskyldualbúmið og aðrar myndir og eitthvað af videoum á youtube. Nýja síðan er að ég held sú fjórða síðan ég fór að halda heimasíður fyrir sennilega einhverjum 10 árum eða svo og ég ætla alveg að spara allar yfirlýsingar um fyrirhugaðan líftíma þessarrar útgáfu. En stefnan er að minnsta kosti að þarna verði vettvangur minn til að sýna uppáhaldsmyndirnar mínar ef einhver hefur áhuga á að skoða. Það litla ritaða efni sem hugsanlega slæðist inn á síðuna verður á ensku þar sem það er jafn ætlað innlendum sem erlendum vinum og kunningjum og öðrum sem hafa áhuga. En hvað sem öðru líður: www.sigosig.com er formlega opnuð aftur. Ekkert opnunarteyti eða formlegheit. Þeir sem vilja fagna er vinsamlegast bent á að gera það með svarfærslu hér fyrir neðan eða í eigin persónu með undirrituðum á förnum vegi eða annarsstaðar. Baráttukveðjur…
Sarpur fyrir flokkinn Ljósmyndun
Dolomitarnir kvaddir í dag
Published laugardagur 13 júní, 2009 Ferðalög , Ljósmyndun Leave a Comment
Það er að síga á seinnihlutann hjá okkur hér á Ítalíu. Við erum að yfirgefa Hotel Adler þar sem hann Hermann/Gustaf/Mannfreð/Herbert hefur hugsað vel um okkur undanfarna daga. Nú er stefnan sett á Feneyjar og hærra hitastig. Fórum í tvær snilldar góðar gönguferðir og upp í tæpa 2700 m í annarri þeirra. Útsýnið á þessum slóðum gæti verið miklu verra og á tveimur dögum tók ég 12 Gb af myndum
Baráttukveðjur heim og sérstaklega til Lukkunnar okkar!
Gleðilegt ár í nýju ljósi!
Published Sunnudagur 6 janúar, 2008 Ljósmyndun , Uncategorized Leave a Comment 
Gleðilegt ár kæru vinir. Mátti til með að setja inn mynd af nýju græjunum. Búið að vera draumur lengi vel að kaupa einföld stúdíóljós og loksins hef ég látið verða að því. Var reyndar ekki einn í fjárfestingunni heldur deili eignarhaldinu með Atla Má. Þetta eru einföld óg ódýr ljós, 2 stk 1500 w flöss, tveir fætur, softbox og regnhlíf ásamt þráðlausum sendi og tilheyrandi snúrum. Fékkst fyrir 35.000 kall í Hans Petersen og ég er bara nokkuð sáttur við gripina, a.m.k. fyrir þennan pening. Þá er bara að moka út úr skrifstofunni sem síðustu misseri hefur breyst í draslageymslu og búa til minnsta stúdíó á Íslandi. Gæti heitið “Stúdíó Smáland” eða “PL Stúdíó” (pínu lítið stúdíó). Nú verður gaman að leika…
Ég var víst búinn að lofa fleiri myndum úr sumarfríinu á flickrið en ég lenti í smá veseni með að importa þær af flakkaranum. Ég er orðinn uppiskroppa með pláss á harða disknum og keypti því annan í Tölvulistanum. Hvað sem ég gerði þá fékk ég alltaf bláskjá í vinnslu á nýja disknum. Tók hann því úr aftur og þarf að skila honum. Hef bara ekki komist í það vegna anna þannig að nýjar myndir koma þegar ég hef unnið úr þessu smámáli. Hef í staðinn aðeins verið að vinna í “eldri” myndum sem teknar voru fyrr í sumar.

Þessi var tekin í Grjótagjá á Mývatni í byrjun júlí.
Þá eru flest frí sumarsins búin og nóg af myndum að vinna úr. Gott að hafa eitthvað að gera á dimmum vetrarkvöldum. Frábært sumar, mikið ferðast og nú tekur vinnan við. Margt spennandi og skemmtilegt þar framundan. Erla að byrja í skólanum. Lukka byrjuð í leikskólanum. Allt að verða normal aftur, nema ég, það verður einhver bið á því að ég verði normal…

Ég er aðeins byrjaður að fara í gegnum myndir sumarsins. Ákvað að henda hér inn einni sumarlegri af henni Mæju vinkonu minni í hádegismat í Litla Enda. Ég var því miður ekki með extension túburnar með mér en náði þessarri og nokkrum fleiri með 70-200 og croppaði þetta út. Hef vonandi tíma í vikunni til að henda inn einhverjum fjölskyldumyndum úr fríinu á Flickrið…
Kominn heim úr 11 daga hálendisferð. Endurnærður með 1200 nýjar myndir að vinna úr. 20 GB takk fyrir það… nóg að gera þessa daga sem við verðum heima í þetta skiptið. Leiðin lá um Kerlingarfjöll, Krakatindsleið, N-Fjallabak, Faxasund, Langasjó, Breiðbak, Sprengisand, Gæsavötn, Dyngjufjallaleið, Dyngjufjalladal, Ódáðahraum og endað á Mývatni. Fékk frábært myndaveður, sérstaklega á Hverasvæðinu í Kerlingarfjöllum. Mest allan tímann var heiðskýrt og sól og það sem stóð upp úr auk hverasvæðisins var jeppatúr inn með Langasjó og til baka um Breiðbak. Fín ferð þar sem við nutum bæði félagsskapar góðra vina og góðs tíma með fjölskyldunni.

Ódáðahraunið er afar seinlegt yfirferðar og lætur manni finnast Dyngjufjallaleiðin vera hraðbraut. Þar skiptast á gróf apalhraun og helluhraun sem aldrei hafa komist í kynni við jarðýtu. Fimm tímar í fyrsta lága eftir einni seinförnustu leið sem ég hef ekið. Bin there – done that! Frábær ferð og ég get ekki beðið eftir að komast til fjalla aftur. Bíllinn fer nú í smá pit-stopp, enda er hann endalaus uppspretta nýrra hugmynda, lagfæringa, endurbóta og viðbóta. Reyndist í alla staði frábærlega í ferðinni þó að alltaf sé eitthvað sem má endurbæta.
Vinn nú í að koma myndum inn á Flickr og klára það vonandi um helgina. Fjallakveðjur…. jors trúlý
Þvílík snilld þetta Lightroom. Er alltaf að komast betur upp á lag með þetta. Kláraði að importa flestum myndunum mínum inn í Lightroomið í gærkvöld. Safnið telur nú 39.585 myndir og þar er allt í belg og biðu. Fjölskyldumyndir, vinnutengdar myndir, landslags og náttúrumyndir og svo framvegis. Eina sem að truflar mig aðeins er að það er ekki hægt að lykla inn keywords með öllum íslenskum stöfum. T.d. er ekki hægt að setja inn kommustafi. Það er hinsvegar alveg hægt að skrifa orð með kommu inn í word og afrita og líma inn í keywords í Lightroom. Ég uppfærði í útgáfu 1,1 í þeirri von að það breytti einhverju varðandi þetta en svo var ekki. Ef einhver kann skýringu á þessu þá væri gott að heyra hana.

Annars er ég heillaður af þessu forriti og vinnuferlinu. Þó væri gaman að geta hlaðið myndum inn á flickr beint úr Lightroom eða ftp-að inn á flickr (Lightroom bíður upp á flutning á ftp en það gerir flickr ekki.)


