
Þá er sumarið að renna sitt skeið á enda. Frábært sumar, mikið af ferðalögum innan lands og utan, með fjölskyldunni og góðum vinum. Fyrst fór ég til UK með bakvaktardrengjunum á námskeið á Skippernum og félögum. Advanced Search Management hét það og var bara hið ágætasta námskeið og svo er félagsskapur þeirra drengja alltaf skemmtilegur og ekki síður svæðisstjórnardrengirnir sem fóru með okkur. Tveim dögum eftir heimkomuna hélt ég í Alpana með stelpunum mínum og við eyddum rúmum 2 vikum í fjallgöngur, klifur og fleira skemmtilegt. Lukka brilleraði í gönguferðunum og við höfðum það mjög gott. Hittum Eygló systir og familíu í nokkra daga í Chamonix og Grindelvald og átttum góða daga saman. Þegar heim kom náðum við svo ca 10 góðum dögum á íslenskum fjöllum í góðu veðri þangað til ég fór aftur í Alpana og Nú með Atla og fjallahjólið í farteskinu. Það hjóluðum við frá Chamonix til Zermatt með frábærum hópi fólks og gekk það vel miðað við aldur og fyrri störf, og þá sérstaklega fyrri störf. Eftir tvær frábærar vikur á fjallahjóli í fjallahjólahimnaríki hittum við Atli Erlu, Lukku, Jóhönnu og Ívar Inga í Danmörku, fórum í Legoland, Tívolí, dýragarð og allann þann pakka. Heimsóttum svo auðvitað Þóru systir í mýflugumynd í leiðinni. Sem sagt frábært sumar, fullt af góðum minningum og myndum og sumt komið inn á flickrið.