Sarpur fyrir október, 2009

Ný sigosig.com opnar

www.sigosig.com

www.sigosig.com

Ég er búinn að opna nýja www.sigosig.com. Síðan mín hefur legið niðri í nokkurn tíma síðan léninu var “stolið”. Nú er það mitt aftur og að þessu sinni eingöngu ætlað ljósmyndum úr safni mínu. Áfram verð ég með þessa síðu fyrir texta og hugrenningar, flickr síðuna fyrir fjölskyldualbúmið og aðrar myndir og eitthvað af videoum á youtube. Nýja síðan er að ég held sú fjórða síðan ég fór að halda heimasíður fyrir sennilega einhverjum 10 árum eða svo og ég ætla alveg að spara allar yfirlýsingar um fyrirhugaðan líftíma þessarrar útgáfu. En stefnan er að minnsta kosti að þarna verði vettvangur minn til að sýna uppáhaldsmyndirnar mínar ef einhver hefur áhuga á að skoða. Það litla ritaða efni sem hugsanlega slæðist inn á síðuna verður á ensku þar sem það er jafn ætlað innlendum sem erlendum vinum og kunningjum og öðrum sem hafa áhuga.  En hvað sem öðru líður: www.sigosig.com er formlega opnuð aftur. Ekkert opnunarteyti eða formlegheit. Þeir sem vilja fagna er vinsamlegast bent á að gera það með svarfærslu hér fyrir neðan eða í eigin persónu með undirrituðum á förnum vegi eða annarsstaðar. Baráttukveðjur…