Sarpur fyrir nóvember, 2008

Dádýra og silungsveiðar í NZ

Fritz biður þess að taka á móti Bamba.

Hér í NZ er komið kvöld og ég er á Victoria Lodge í Rotorura, fjallahjólahöfuðborg Nýja Sjálands. Fyrirlesturinn á ráðstefnunni gekk eins og í lygasögu og eftir ráðstefnuna fórum við Mike Rose með gestgjöfum okkar á dádýraveiðar í óbyggðum nærri Taupo vatni og silungsveiðar á vatninu sjálfu. Frábærir dagar í góðum félagsskap og engin vonbrigði með Ný Sjálenska gestrisni. Veiddum reyndar engin dádýr þrátt fyrir mikið af ferskum ummerkjum en eftirförin sjálf og leitin að dýrunum vel erfiðisins virði. Við fengum hinsvegar 3 þokkalega væna silunga og átum þá í grillveislu heima hjá einum gestgjafa okkar. Einn af hápunktunum var eldamennskan þegar maróinn Tom eldaði fyrir okkur “holusteik” að hætti frumbyggjana. Bestu þakkir til Fritz, Tom og Dave fyrir að hugsa vel um okkur. Nú er næsta mál að hjóla sig máttlausan og nota þá tvo daga sem eftir eru alveg í tætlur. Fer í fyrramálið að leigja hjól og kanna hjólasvæðin hér sem líta vægast sagt vel út. Nóg um það, farinn í háttinn, hvíla sig fyrir átökin!

Tom mundar hnifinn.

Last minute panic = Uppskrift að árangri

Motel Pavilion i Palmerston North

Það var komið miðnætti í gær þegar ég átti enn eftir að klára 3 tíma workshop sem ég var með hér á ráðstefnunni í dag. Ég var búinn að breyta helmingnum af því sem ég hafði komið með að heiman á meðan ég var enn í Christchurch. Þá datt mér í hug að kíkja í dagskránna og sjá hvað stæði um mig og minn fyrirlestur. Það sem stóð um mig var allt nokkuð satt og rétt en það sem stóð um efni fyrirlestursins var síðan allt annað en það sem ég hafði undirbúið! Frábært…  Og þar sem ég er maður sem vill ekki valda vonbrigðum (ég sagði vill ekki, ekki þar með sagt að ég geri það aldrei) þá byrjaði ég í morgun að breyta hinum helmingnum sem ég breytti ekki í Christchurch og kláraði það ca 12 mínútum fyrir fyrirlesturinn kl.13.00. Nokkuð góður millitími það! Og svo gekk þetta bara eins og í lygasögu, ca 25-30 þátttakendur og mikill áhugi og ef marka má það sem fólkið sagði, mikil ánægja. Þar með er stressið farið enda bara eftir að halda fyrirlestur fyrir 330 manns á sunnudaginn! Palmerston North er bara nokkuð snyrtilegur staður og ég er með heila 2ggja herbergja stúdíoíbúð á Hotel Pavilion.

Andfættur í dag!

Stefán Bergsson og Bergur Stefánsson alveg syngjandi happy i sólinni.

Stefán Bergsson og Bergur Stefánsson alveg syngjandi happy í sólinni.

Eftir hrikalega langt flug, 5 flugvelli og 30klst í flugvél er ég mættur til Christchurch í Nýja Sjálandi og dvel eins og er í góðu yfirlæti hjá Berg og Maríu. Hér er sumar, sól og hiti og eintóm sæla. Við fórum í spandex hjólatúr áðan við Bergur (án þess að vera í spandex reyndar) en hér er annar hver maður hjólreiðamaður og nokkuð mikið um aðra hjólreiðara á ferðinni. Ég er staddur hér hinu meginn á hnettinum til að sækja ráðstefnuna LandSAR 2008 og halda þar tvo fyrirlestra.