Sarpur fyrir janúar, 2008

Gleðilegt ár í nýju ljósi!

 Studio

Gleðilegt ár kæru vinir. Mátti til með að setja inn mynd af nýju græjunum. Búið að vera draumur lengi vel að kaupa einföld stúdíóljós og loksins hef ég látið verða að því. Var reyndar ekki einn í fjárfestingunni heldur deili eignarhaldinu með Atla Má. Þetta eru einföld óg ódýr ljós, 2 stk 1500 w flöss, tveir fætur, softbox og regnhlíf ásamt þráðlausum sendi og tilheyrandi snúrum. Fékkst fyrir 35.000 kall í Hans Petersen og ég er bara nokkuð sáttur við gripina, a.m.k. fyrir þennan pening. Þá er bara að moka út úr skrifstofunni sem síðustu misseri hefur breyst í draslageymslu og búa til minnsta stúdíó á Íslandi. Gæti heitið “Stúdíó Smáland” eða “PL Stúdíó” (pínu lítið stúdíó). Nú verður gaman að leika…