Sarpur fyrir desember, 2007

Gleðileg Jól!

Jólaundurbúningi okkar litlu fjölskyldu er því sem næst lokið. Það er þorláksmessa og allt orðið nokkuð snyrtilegt innandyra og Lukka bíður í ofvæni eftir jólunum. Hún er svo spennt að hún veit stundum ekkert hvað hún á af sér að gera. Settum jólatréð saman í gær og settum seríuna á það. Lukka og ég skreyttum það svo í morgun. Fórum í húsdýragarðinn í gær með Atla og Jóhönnu og áttum hann eiginlega út af fyrir okkur. Greinilega ekki margir sem máttu vera að því að fara þangað í jólatraffíkinni. Hittum Gáttaþef hjá selatjörninni og hann spjallaði heilmikið við okkur enda ekki margir aðrir á ferli til að tala við. Við óskum öllum gleðilegra jóla!

Gáttaþefur � Fjölskyldu- og húsdýragarðinum.
Tveir jólasveinar, Atli og Gáttaþefur (Atli er þessi með bakpokann), ásamt Erlu, Lukku og Ívar Inga.