Það er tvennt (eða reyndar miklu fleira) sem liggur á mér um þessar mundir. Fyrir utan það að eiga eftir að uppfæra leitartæknibókina og smíða nýtt helgarnámskeið í sporrakningum þá eru það mál tengd því sem ég vonast til að hafa tíma til að sinna á næstunni. Annars vegar er það að vinna úr tilraun með leitarsvið sem við Frissi og Oddur framkvæmdum ásamt nemendum á fagnámskeiði í leitartækni fyrir nærri ári síðan og hitt er að með einum eða öðrum hætti verði gagnasöfnun um hegðun týndra hafin fyrir alvöru.

Ég er búinn að taka saman eitthvað örlítið af gögnum fyrir síðarnefnda verkefnið en það eru margir lausir endar í þeim tilfellum sem ég hef týnt til og ófá símtöl sem þarf að hringja. Ég þýddi skjal frá Robert Koester til að taka gögnin saman enda verður honum tíðrætt um íslensk gögn í hvert skipti sem við hittum hann. Það sem þarf í þetta eyðublað er hér og ég hvet alla sem þekkja vel til einhverra leitar og geta fyllt svona út til þess að gera það og senda mér á sigosig(-hjá-)landsbjorg.is. Upplýsingar um hegðun týndra eru afar gagnleg verkfæri við skipulagningu leitar og löngu tímabært að við tökum saman einhver íslensk gögn, þó ekki væri nema til að sannreyna að einhver þeirra erlendu falli að okkaraðstæðum. Meðal þeirra gagna sem koma sér vel eru vegalengd frá IPP (Initial Planning Point, sá staður sem upphaflega er notaður sem upphafsstaður í leitinni), líklegir staðir, ástand hins týnda þegar hann fannst, hvar hann fannst og með hvaða leitaraðferð svo að eitthvað sé nefnt.

