Sarpur fyrir ágúst, 2007

Smá ves…

Ég var víst búinn að lofa fleiri myndum úr sumarfríinu á flickrið en ég lenti í smá veseni með að importa þær af flakkaranum. Ég er orðinn uppiskroppa með pláss á harða disknum og keypti því annan í Tölvulistanum. Hvað sem ég gerði þá fékk ég alltaf bláskjá í vinnslu á nýja disknum. Tók hann því úr aftur og þarf að skila honum. Hef bara ekki komist í það vegna anna þannig að nýjar myndir koma þegar ég hef unnið úr þessu smámáli. Hef í staðinn aðeins verið að vinna í “eldri” myndum sem teknar voru fyrr í sumar.

 Grjótagjá
Þessi var tekin í Grjótagjá á Mývatni í byrjun júlí.

60 Gb og 5000 myndir

Þá eru flest frí sumarsins búin og nóg af myndum að vinna úr. Gott að hafa eitthvað að gera á dimmum vetrarkvöldum. Frábært sumar, mikið ferðast og nú tekur vinnan við. Margt spennandi og skemmtilegt þar framundan. Erla að byrja í skólanum. Lukka byrjuð í leikskólanum. Allt að verða normal aftur, nema ég, það verður einhver bið á því að ég verði normal…
 Byfluga
Ég er aðeins byrjaður að fara í gegnum myndir sumarsins. Ákvað að henda hér inn einni sumarlegri af henni Mæju vinkonu minni í hádegismat í Litla Enda. Ég var því miður ekki með extension túburnar með mér en náði þessarri og nokkrum fleiri með 70-200 og croppaði þetta út. Hef vonandi tíma í vikunni til að henda inn einhverjum fjölskyldumyndum úr fríinu á Flickrið…