Sarpur fyrir júlí, 2007

Óbyggðagleði

Kominn heim úr 11 daga hálendisferð. Endurnærður með 1200 nýjar myndir að vinna úr. 20 GB takk fyrir það… nóg að gera þessa daga sem við verðum heima í þetta skiptið. Leiðin lá um Kerlingarfjöll, Krakatindsleið, N-Fjallabak, Faxasund, Langasjó, Breiðbak, Sprengisand, Gæsavötn, Dyngjufjallaleið, Dyngjufjalladal, Ódáðahraum og endað á Mývatni. Fékk frábært myndaveður, sérstaklega á Hverasvæðinu í Kerlingarfjöllum. Mest allan tímann var heiðskýrt og sól og það sem stóð upp úr auk hverasvæðisins var jeppatúr inn með Langasjó og til baka um Breiðbak. Fín ferð þar sem við nutum bæði félagsskapar góðra vina og góðs tíma með fjölskyldunni.
Hverasvaedi_Kerlingafjoll

Ódáðahraunið er afar seinlegt yfirferðar og lætur manni finnast Dyngjufjallaleiðin vera hraðbraut. Þar skiptast á gróf apalhraun og helluhraun sem aldrei hafa komist í kynni við jarðýtu. Fimm tímar í fyrsta lága eftir einni seinförnustu leið sem ég hef ekið. Bin there – done that! Frábær ferð og ég get ekki beðið eftir að komast til fjalla aftur. Bíllinn fer nú í smá pit-stopp, enda er hann endalaus uppspretta nýrra hugmynda, lagfæringa, endurbóta og viðbóta. Reyndist í alla staði frábærlega í ferðinni þó að alltaf sé eitthvað sem má endurbæta.
Vinn nú í að koma myndum inn á Flickr og klára það vonandi um helgina. Fjallakveðjur…. jors trúlý

Lightroom

Þvílík snilld þetta Lightroom. Er alltaf að komast betur upp á lag með þetta. Kláraði að importa flestum myndunum mínum inn í Lightroomið í gærkvöld. Safnið telur nú 39.585 myndir og þar er allt í belg og biðu. Fjölskyldumyndir, vinnutengdar myndir, landslags og náttúrumyndir og svo framvegis. Eina sem að truflar mig aðeins er að það er ekki hægt að lykla inn keywords með öllum íslenskum stöfum. T.d. er ekki hægt að setja inn kommustafi. Það er hinsvegar alveg hægt að skrifa orð með kommu inn í word og afrita og líma inn í keywords í Lightroom. Ég uppfærði í útgáfu 1,1 í þeirri von að það breytti einhverju varðandi þetta en svo var ekki. Ef einhver kann skýringu á þessu þá væri gott að heyra hana.
 Lightroom Screenshot
Annars er ég heillaður af þessu forriti og vinnuferlinu. Þó væri gaman að geta hlaðið myndum inn á flickr beint úr Lightroom eða ftp-að inn á flickr (Lightroom bíður upp á flutning á ftp en það gerir flickr ekki.)

Hlaupabólu “frí”

Við vorum lögð af stað í þriggja vikna ferðalag. Vorum að hátta Lukku fyrsta kvöldið og þá blöstu við okkur bólur á stangli og ulluðu á okkur. Fórum í bæinn daginn eftir enda ekki um margt annað að ræða. Lukka útsteypt í hlaupabólu að fá hita og pirring undan samspili bóla og bílstóls. Er búinn að vera að nota tímann síðan í að vinna í bílnum og slappa af með Lukku og Erlu. Kom ýmsu í verk en er farinn að verða óþolinmóður að komast til fjalla aftur. Stefnum á hálendið sunnan Hofsjökuls og síðan Langasjó og Gæsavötn. Bíllinn alltaf að verða betri og betri þó að hann sé auðvitað botnlaus uppspretta verkefna. Læt fylgja með eina mynd af kagganum á köldu sumarkvöldi við Langavatn.

Fordinn við Langavatn

Fíflaferð

Hittum hin fíflin í Fljótstungu í Hvítársíðu um síðustu helgi. Ferðin heppnaðist vel og gaman að hitta þessa vitleysinga. Bergur var auðvitað ekki á svæðinu enda  langt að fara frá Nýja Sjálandi í Hvítársíðuna. Tjaldstæðin þarna í Fljótstungu eru svosem ekki upp á marga fiska en þó betra að vera þar ein úti á túni en í aftanívagna gettoinu í Húsafelli. Keyrðum þar í gegn með aumingjahrollinn á leið okkar til gönguferðar í uppspretturnar við flugvöllin og að ármótum Norðlingafljóts og Hvítár. Greinilegt á merkingar- og notkunarleysi þeirrar gönguleiðar að skuldahalabúarnir hafa meiri áhuga á að grilla og drekka bjór í efnishyggjuorgíunni á Húsafellstjaldstæði en að skoða fagra náttúruna í 20 mínútna göngufjarlægð. Afsakið hneykslan mína en maður bara…

Birkir og Kári
Bræðurnir Birkir og Kári kunnu að meta náttúrufegurðina og stilltu sér upp meðan pabbi þeirra tók mynd. Ég notaði tækifæri á meðan.