Ég er búinn að opna nýja www.sigosig.com. Síðan mín hefur legið niðri í nokkurn tíma síðan léninu var “stolið”. Nú er það mitt aftur og að þessu sinni eingöngu ætlað ljósmyndum úr safni mínu. Áfram verð ég með þessa síðu fyrir texta og hugrenningar, flickr síðuna fyrir fjölskyldualbúmið og aðrar myndir og eitthvað af videoum á youtube. Nýja síðan er að ég held sú fjórða síðan ég fór að halda heimasíður fyrir sennilega einhverjum 10 árum eða svo og ég ætla alveg að spara allar yfirlýsingar um fyrirhugaðan líftíma þessarrar útgáfu. En stefnan er að minnsta kosti að þarna verði vettvangur minn til að sýna uppáhaldsmyndirnar mínar ef einhver hefur áhuga á að skoða. Það litla ritaða efni sem hugsanlega slæðist inn á síðuna verður á ensku þar sem það er jafn ætlað innlendum sem erlendum vinum og kunningjum og öðrum sem hafa áhuga. En hvað sem öðru líður: www.sigosig.com er formlega opnuð aftur. Ekkert opnunarteyti eða formlegheit. Þeir sem vilja fagna er vinsamlegast bent á að gera það með svarfærslu hér fyrir neðan eða í eigin persónu með undirrituðum á förnum vegi eða annarsstaðar. Baráttukveðjur…
Dolomitarnir kvaddir í dag
Published laugardagur 13 júní, 2009 Ferðalög , Ljósmyndun Leave a Comment
Það er að síga á seinnihlutann hjá okkur hér á Ítalíu. Við erum að yfirgefa Hotel Adler þar sem hann Hermann/Gustaf/Mannfreð/Herbert hefur hugsað vel um okkur undanfarna daga. Nú er stefnan sett á Feneyjar og hærra hitastig. Fórum í tvær snilldar góðar gönguferðir og upp í tæpa 2700 m í annarri þeirra. Útsýnið á þessum slóðum gæti verið miklu verra og á tveimur dögum tók ég 12 Gb af myndum
Baráttukveðjur heim og sérstaklega til Lukkunnar okkar!
Lukkan mín horfir heilluð í rauðan logann.
Þá eru jólin búin, við fölskyldan sprengdum þau í burtu fyrr í kvöld ásamt greinilega nokkrum öðrum íbúum stór Kópavogssvæðisins sem áttu afganga frá Gamlárskvöldi. Spennandi ár er framundan, Erla að klára sjúkraþjálfunina í vor, stórar hjólaferðir hérlendis og erlendis á dagskránni, árskort á skíði bíður í veskinu eftir kaldari tíð, stór og spennandi verkefni bíða í vinnunni, langt og gott ferðasumar í sjónmáli og margt annað spennandi og skemmtilegt. Óopinber og óformleg áramótaheit hafa verið strengd inni í sálinni og allt klárt fyrir gott ár framundan.
Dádýra og silungsveiðar í NZ
Published miðvikudagur 26 nóvember, 2008 Ferðalög , Leit og björgun 1 CommentHér í NZ er komið kvöld og ég er á Victoria Lodge í Rotorura, fjallahjólahöfuðborg Nýja Sjálands. Fyrirlesturinn á ráðstefnunni gekk eins og í lygasögu og eftir ráðstefnuna fórum við Mike Rose með gestgjöfum okkar á dádýraveiðar í óbyggðum nærri Taupo vatni og silungsveiðar á vatninu sjálfu. Frábærir dagar í góðum félagsskap og engin vonbrigði með Ný Sjálenska gestrisni. Veiddum reyndar engin dádýr þrátt fyrir mikið af ferskum ummerkjum en eftirförin sjálf og leitin að dýrunum vel erfiðisins virði. Við fengum hinsvegar 3 þokkalega væna silunga og átum þá í grillveislu heima hjá einum gestgjafa okkar. Einn af hápunktunum var eldamennskan þegar maróinn Tom eldaði fyrir okkur “holusteik” að hætti frumbyggjana. Bestu þakkir til Fritz, Tom og Dave fyrir að hugsa vel um okkur. Nú er næsta mál að hjóla sig máttlausan og nota þá tvo daga sem eftir eru alveg í tætlur. Fer í fyrramálið að leigja hjól og kanna hjólasvæðin hér sem líta vægast sagt vel út. Nóg um það, farinn í háttinn, hvíla sig fyrir átökin!
Last minute panic = Uppskrift að árangri
Published föstudagur 21 nóvember, 2008 Ferðalög , Leit og björgun , Uncategorized 1 CommentÞað var komið miðnætti í gær þegar ég átti enn eftir að klára 3 tíma workshop sem ég var með hér á ráðstefnunni í dag. Ég var búinn að breyta helmingnum af því sem ég hafði komið með að heiman á meðan ég var enn í Christchurch. Þá datt mér í hug að kíkja í dagskránna og sjá hvað stæði um mig og minn fyrirlestur. Það sem stóð um mig var allt nokkuð satt og rétt en það sem stóð um efni fyrirlestursins var síðan allt annað en það sem ég hafði undirbúið! Frábært… Og þar sem ég er maður sem vill ekki valda vonbrigðum (ég sagði vill ekki, ekki þar með sagt að ég geri það aldrei) þá byrjaði ég í morgun að breyta hinum helmingnum sem ég breytti ekki í Christchurch og kláraði það ca 12 mínútum fyrir fyrirlesturinn kl.13.00. Nokkuð góður millitími það! Og svo gekk þetta bara eins og í lygasögu, ca 25-30 þátttakendur og mikill áhugi og ef marka má það sem fólkið sagði, mikil ánægja. Þar með er stressið farið enda bara eftir að halda fyrirlestur fyrir 330 manns á sunnudaginn! Palmerston North er bara nokkuð snyrtilegur staður og ég er með heila 2ggja herbergja stúdíoíbúð á Hotel Pavilion.
Andfættur í dag!
Published miðvikudagur 19 nóvember, 2008 Ferðalög , Leit og björgun Leave a CommentEftir hrikalega langt flug, 5 flugvelli og 30klst í flugvél er ég mættur til Christchurch í Nýja Sjálandi og dvel eins og er í góðu yfirlæti hjá Berg og Maríu. Hér er sumar, sól og hiti og eintóm sæla. Við fórum í spandex hjólatúr áðan við Bergur (án þess að vera í spandex reyndar) en hér er annar hver maður hjólreiðamaður og nokkuð mikið um aðra hjólreiðara á ferðinni. Ég er staddur hér hinu meginn á hnettinum til að sækja ráðstefnuna LandSAR 2008 og halda þar tvo fyrirlestra.
Á fjallahjólabaki að fjallabaki
Published miðvikudagur 24 september, 2008 Ferðalög , Hjólreiðar Leave a Comment
Fórum um daginn við hjónin í fínan hjólatúr frá Álftavatni, austur fyrir vatnið niður að Torfahlaupi og langleiðina inn í Krók eftir fínasta singletracki. Mjög flottur túr, góð xc leið sem ég er búinn að vera að spá í nokkuð lengi. Fullkomnaði fyrir mér hugmynd að 3-4 daga ferð sem verður farinn í góðra vina hópi næsta sumar og er einskonar “Laugavegsútúrsnúningur”. Stendur jafnvel til að fara leiðina með túrista ef einhver áhugi verður fyrir því.
Riding sheep trail!
Published mánudagur 15 september, 2008 Ferðalög , Hjólreiðar , Uncategorized Leave a Comment
Smá video sem ég setti á Youtube með myndum frá ferð okkar Erlu á Hellisheiði fyrir 2 vikum ca. Fórum veginn meðfram Skarðsmýrarfjalli og inn í Innstadal. Frá Innstadal fórum við göngustíg/kindaslóð fram dalina og í gegnum Þrengslin og svo veginn til baka.
Rammíslenskt veður á fjallabaki
Published Sunnudagur 14 september, 2008 Ferðalög , Uncategorized Leave a Comment
Við fórum í skemmtilega ferð um helgina. Þegar flestir héldu sig heima útaf veðurspánni brunuðum við upp í Lambhaga á föstudagskvöldið og sváfum þar í fínu veðri. Á laugardeginum keyrðum við svo upp að Fossbrekkum en þar var svo mikið rok að fossarnir runnu uppávið og við stöldruðum ekki lengi þar. Í Áfangagili var hinsvegar hin mesta veðurblíða og hægt að sitja úti, lesa og borða osta. Fórum síðan Dyngjuleiðina og upp að Eskihlíðarvatni þar sem við enduðum á að gista eftir að hafa leikið okkur í sandinum í skemmtilegu veðri þar sem gekk á með sól og roki og rigningu. Það jafnast ekkert á við tært loftið þegar sólin brestur á strax eftir hellirigningu.
Hjólað niður Everest!
Published miðvikudagur 10 september, 2008 Ferðalög , Hjólreiðar , Uncategorized Leave a Comment
Við Atli hjóluðum niður eitt og hálft Everest (niður að sjávarmáli) fyrstu tvo dagana sem við vorum í Chamonix í sumar. Ekkert ömurlegt…






